fimmtudagur, desember 25, 2008

Póstsending Heiða

Þá er aðfangadagurinn búinn. Ég borðaði á mig gat af rjúpum og þegar ég var búin að borða á mig gat gekk ég frá disknum mínum en hélt samt alltaf áfram að skera mér flísar og narta í endalaust. Ég semsagt borðaði yfir yfir mig. Pakkarnir voru margir og við tókum okkur alveg dágóðan tíma í þetta. Við borðuðum jólaísinn okkar og ég fékk möndluna vúhí! Ég fékk æðislega pakka og allt það en eitt það skemmtilegasta sem ég fékk var jólakort frá Snæfríði bekkjarsystur minni úr 4.A. Við vorum semsagt pennavinkonur í kringum 1998 og uppgötvuðum það síðan þegar við vorum saman á málabrautinni. Með jólakortinu fylgdi gamalt pennavinabréf sem ég hafði sent henni kringum '98:

Póstsending Heiða 27/4 '98 Akureyri

Hæ Snæfríður þú skrifar ekkert illa. Vinkona mín er Gréta. Ég á bara eina vinkonu. En þú? Ég er búin að fá þrjá nýja fiska. Einn þeirra er búinn að bíta einn gullfisk sem er mjög lasinn. Það verður að skila bítifiskinum og fá nýjan. Ég fer bráðum í sveitina mína að vinna, sveitin heitir Búrfell. Hvað er uppáhalds liturinn þinn? Hefur þú séð bönnuð börnum myndir með Arnold Schwarzenegger? Eins og þegar hann er vélmenni og á að bjarga stráki frá vondu vélmenni. Á síðasta sunnudag hjólaði ég og Gréta í Kjarnaskóg og tókum nesti með það var ótrúlega gaman nema bakleiðin það var ískalt. Jæja ég verð að hætta að skrifa ég er að fara að sofa ég er nefnilega að skrifa að kvöldi til.

bæ bæ

Heiða Björg

P.S. Ég skrifa sjálf illa.

(Og umkringd síðustu orðin voru hjörtu og stjörnu).

Ég er forvitin hverju Snæfríður svaraði mér. Verð að fara að finna gömlu pennavinabréfin.

En annars vil ég bara óska öllum gleðilegra jóla og hafið það alveg rosalega gott um jólin.

|

föstudagur, desember 19, 2008

How to

Ég var að uppgötva nýja síðu, þetta er uppáhaldssíðan mín núna.

http://www.videojug.com

Ef þið eigið í vandræðum með eitthvað og þurfið góð ráð eða bara nákvæma kennslu um málið, þá er þetta síðan fyrir ykkur. Þarna er kennt þér að undirbúa þig fyrir stefnumót, mála þig eins og Carrie Bradshaw, hvað þú átt að gera eftir kynlíf, hvernig þú átt að kyssa manneskju ástríðlega og svo lengi lengi má telja. Þetta er besta síða í heimi ... á eftir IMDB.

Það verður awesomely gaman á morgun.

Ég elska ykkur öll

|