föstudagur, júní 17, 2005

Myndasíða

Jæja þá er ég loksins búin að setja upp myndasíðu þar sem það var út í hróann að posta alltaf myndunum beint á bloggið mitt.

Ég hafði ekki hugmynd um hvernig backgroundarnir væru svo ég valdi eitthvað sem hét monster green, það var svo skelfilegt að ég henti bara einhverju inn sem ég átti í tölvunni..í bili. Þannig að endilega finnið einhvern smekkvísan bakgrunn sem myndi prýða þessa síðu, eplin eru klárlega ekki að gera sig.

En nóg af þessu, hér er slóðin Jamapple og þarna finniði myndir af prinsessunni sem án nokkurrar efablendni er fallegasta blómarósin um þessar mundir og ekki er móðirin síðri:)

Gleðilega hátíð

|

fimmtudagur, júní 16, 2005

Das winzige Kind

Krílið er komið í heiminn.

:-)

|

laugardagur, júní 11, 2005

Ýdalir

Anna, Björg, ég, Katrín og Linda lögðum land undir fót og keyrðum á Ýdali þar sem mikil gleði og kátína ríkti.

Kæliboxið mitt var tekið með og það vakti aldeilis mikla lukku.

Mikill mjöður var drukkinn og góður galsi var í flestum á tjaldstæðinu og á ballinu.

Frisbí/svif kom mikið við sögu og mun sú íþrótt klárlega vera stunduð meira í sumar.

Maríukexið var gott.

|

mánudagur, júní 06, 2005

Jeeeessss

Jeeeessss! :)

Ég hef ekkert meira um þessa próftíð að segja.

|