miðvikudagur, júní 11, 2008

Kjólarnir mínir

Ég auglýsi hér með eftir tveimur kjólum sem hafa lengi verið týndir. Ég er nokkuð viss um að ég hafi lánað þá en aldrei fengið þá tilbaka.

Einn þeirra er hvítur með svörtum stórum blómum, nær aðeins fyrir neðan hné, vítt pils og með stuttum ermum. Fjórar stórar tölur í hálsmálinu.

Hinn er dökkfjólublár með litlum myndum af hjólum. Þetta er "skokkur" með ermum og nær síddin rétt fyrir ofan hné.

Jæja. Er einhver með kjólana mína?

|