miðvikudagur, apríl 30, 2008

Gleði

Gleði gleði. Þrátt fyrir að það sé margt á döfinni, leiðinleg verkefni og poopur, þá ríkir mikil kátína um þessar mundir. Ég skrifaði 1800 orða Gatsbry ritgerð á tveimur dögum (þurfti bara að vera 1500 orð) og skilaði henni inn degi fyrir skiladag. Það er ekki oft sem það gerist. En að því tilefni ætla ég á döbbúl deit í kvöld, fá mér freyðivín og tælenskan hrísgrjónarétt.

Annars vil ég bara segja að þið eruð öll krúttleg.



Miers

|

miðvikudagur, apríl 16, 2008

Hnetur

Frænka mín er krúttlegust í heiminum. Ég hlakka til að leika við hana og strjúka mjúku kinnunum á litla pjattasmjattanum sem verður skírður í næstu viku.


Ulliuuuulllll


Dúllipúllúll


Fína regnkápan sem ég gaf henni frá Frakklandi.

Stór dagur á morgun.

Frieden

|